Spænska stórveldið Barcelona, í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands, býður upp á sérstakar æfingabúðir í júlí hérlendis sem eru eingöngu ætlaðar stúlkum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá akademíunni.
Gæði íslenskrar kvennaknattspyrnu eru á heimsmælikvarða. Því leitar Barcelona nú til Íslands en félagið kom kvennaliði á fót í fyrra og leggur nú mikla áherslu á kvennaboltann.
Reyndir þjálfarar félagsins munu þjálfa þátttakendur eftir æfingakerfi þeirra og miðla þekkingu sinni til íslenskra þjálfara um leið. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á æfingabúðir af þessum toga sem eru eingöngu ætlaðar stúlkum.
Æfingabúðirnar verða á Valsvellinum dagana 8. – 13. júlí. Þeim lýkur með hófi þar sem Carles Vilarrubí, varaforseti félagsins, verður viðstaddur.