Norska stórliðið Rosenborg er komið áfram í 8-liða úrslit bikarsins eftir 3:1 sigur á Nest Sotra í kvöld.
Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Þórarinsson voru báðir í byrjunarliði Rosenborg í kvöld en Hólmar Örn Eyjólfsson var hvíldur og sat því á bekknum. Guðmundur var tekinn af velli á 64. mínútu en Matthías lék allan leikinn.
Hann komst einn á blað en hann skoraði annað mark Rosenborg í kvöld. Þetta var fimmta mark hans á tímabilinu í öllum keppnum.
Það er ljóst hvaða átta lið fara í 8-liða úrslitin. Bodø/Glimt, Sarpsborg, Strømsgodset, Tromsø, Vålerenga, Kongsvinger, Sandefjord og Rosenborg eru þar. Samtals eru átta Íslendingar í þessum liðum, en þrír af þeim eru í Rosenborg.