Motta fær tíuna í ítalska landsliðinu

Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, er á sínum stað í ítalska …
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, er á sínum stað í ítalska liðinu. AFP

Það segir kannski allt sem segja þarf um ástand ítölsku sóknarinnar að miðjumaðurinn Thiago Motta sé sá ítalski landsliðmaður sem verður með treyjunúmerið 10 á Evrópumótinu í Frakklandi, en 23 manna landsliðshópur Ítalíu var tilkynntur í dag.

Antonio Conte, sem tekur við sem þjálfari Chelsea að EM loknu, tók nokkrar áhættur þegar hann valdi hópinn, en helstu vandræði Ítala eru meiðsli lykilmanna eins og Claudio Marchisio og Marco Verratti á miðjunni. 

Ekkert bólar á Balotelli í hópnum, en leikmaðurinn hefur ekki fagnað góðu gengi síðustu ár. 

EM-hópur Ítalíu:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert