Xherdan Shaqiri, landsliðsmaður Sviss í knattspyrnu, skoraði magnað mark gegn Póllandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins sem fer fram í Frakklandi um þessar mundir en óhætt er að segja að markið sé eitt af mörkum mótsins.
Það var útlit fyrir að Pólland færi í 8-liða úrslitin en á 82. mínútu jafnaði Shaqiri metin með frábæru marki.
Hann skoraði með hjólhestaspyrnu fyrir utan teig en boltinn fór af stöng og inn. Hægt er að sjá myndskeiðið hér fyrir neðan.
Goal of the tournament? #beINEuro16 #EURO2016 https://t.co/0WomcMmFPp
— beIN SPORTS (@beINSPORTS) June 25, 2016