Dagný Brynjarsdóttir lagði grunninn að sigri Portland Thorns á Orlando Pride þegar liðin mættust í Orlando í bandarísku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Lið Orlando komst yfir með marki Jasmyne Spencer þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir, en Dagný jafnaði metin á 79. mínútu þegar hún vippaði laglega yfir markvörð Orlando eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Það var svo á lokamínútunni sem Lindsey Horan skoraði sigurmark Portland, sem fór með dramatískan 2:1 sigur af hólmi.
Dagný byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður skömmu eftir að Portland lenti undir og það borgaði sig heldur betur. Hún hefur nú skorað þrjú mörk í fyrstu ellefu umferðunum, en að þeim loknum er Portland á toppnum með 23 stig.
🇺🇸 That's brilliant @dagnybrynjars. #ORLvPOR #BAONPDX pic.twitter.com/kRRVcHFu3X
— WoSo Comps (@WoSoComps) June 26, 2016