Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði síðara mark norska liðsins Avaldsnes þegar liðið lagði finnska liðið PK-35, 2:0, í síðasta leik sínum í riðlakeppni undankeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í dag.
Avaldsnes vann alla þrjá leiki sína í riðlinum og er komið áfram í 32-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Hólmfríður lék allan tímann en Þórunn Helga Jónsdóttir lék tvær síðustu mínúturnar.