Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var í byrjunarliði Nantes sem tapaði 1:0 fyrir Bordeaux í frönsku 1. deildinni í dag.
Íslenski framherjinn byrjaði inni á í dag en honum var skipt af velli á 86. mínútu.
Nantes hefur ekki farið neitt sérlega vel af stað á þessu tímabili en liðið er með einn sigur úr fyrstu þremur leikjunum.
Kolbeinn er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Úkraínu í undankeppni HM í byrjun september.