Alfreð Finnbogason opnaði markareikning sinn með Augsburg í deildinni á þessu tímabili.
Alfreð tryggði sínum mönnum 1:0 sigur gegn Darmstadt á heimavelli þegar hann skallaði boltann laglega í netið af stuttu færi í upphafi síðari hálfleiks.
Með sigrinum fór Augsburg upp í 10. sæti deildarinnar en liðið hefur sjö stig eftir fimm leiki.