Landsliðsbakvörðurinn Ari Freyr Skúlason skoraði í kvöld sitt fyrsta mark fyrir Lokeren í belgísku A-deildinni í knattspyrnu.
Ari Freyr kom sínum mönnum í 1:0 á útivelli gegn Beveren en heimamönnum tókst að jafna metin sex mínútum fyrir leikslok og lokatölur urðu 1:1.
Ari Freyr lék allan tímann fyrir Lokeren og það sama gerði Sverrir Ingi Ingason.