Fjórtán leikjum af 24 er nú lokið í Evrópudeildinni í knattspyrnu karla en um er að ræða aðra umferð riðlakeppninnar en leikið er í 12 riðlum.
Rússneska liðið Krasnodar, sem Ragnar Sigurðsson lék áður með, vann Mario Balotelli og félaga í Nice, 5:2. Balotelli skoraði eitt marka Nice er hann minnkaði muninn í 2:1 á 43. mínútu en markið var hans fjórða fyrir félagið hvers raðir hann gekk í fyrir tímabilið frá Liverpool. Nice hefur tapað báðum leikjum sínum í riðlinum, sá fyrri var 1:0 tap gegn Schalke sem vann Salzuburg 1:0.
Enska félagið Southampton gerði markalaust jafntefli við Hapoel Beer Sheva frá Ísrael þar í landi en bæði lið hafa fjögur stig í 1. og 2. sæti riðilsins. Í sama riðli vann Sparta Prag ítalska liðið Inter, 3:1, þar sem Vaclav Kadlec skoraði tvö mörk og Mario Holek eitt, en mark Inter skoraði Rodrigo Palacio. Sparta hefur 3 stig en Inter ekkert á botni K-riðils.
Úrslit dagsins þegar 10 leikir eru eftir í kvöld:
0:0 FC Astana - Young Boys
2:3 Qabala - Mainz 05
1:0 Ajax - Standard Liege
2:0 Celta Vigo - Panathinaikos
2:0 Gent - Konyaspor
2:0 Shakhtar Donetsk - Braga
5:2 Krasnodar - Nice
3:1 Schalke 04 - Salzburg
5:1 Fiorentina - Qarabag
1:2 Slovan LIberec PAOK Thessaloniki
0:0 Hapoel Beer Shava - Southampton
3:1 Sparta Prag - Inter
2:1 Zürich - Osmanlispor
1:1 Steaua Búkarest - Villareal