Real Madrid tyllti sér á topp spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 2:1 sigri gegn Athletic Bilbao á heimavelli.
Varamaðurinn Alvaro Morata skoraði sigurmark Madrídarliðsins á 82. mínútu en Karim Benzema skoraði fyrra mark liðsins á 7. mínútu leiksins.
Real Madrid er með 21 stig í efsta sæti, Sevilla 20 og Barcelona og Villarreal eru með 19 stig.