Viðar Örn Kjartansson og samherjar hans í Maccabi Tel-Aviv töpuðu í kvöld fyrsta leik sínum í ísraelsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Maccabi Tel-Aviv tók á móti Maccabi Haifa og mátti sætta sig við 2:0 tap. Viðar Örn byrjaði á bekknum en var skipt inn á í hálfleik.
Viðar Örn og félagar eru í öðru sæti deildarinnar með 16 stig eins og toppliðið Hapoel Beer Sheva sem er með betri markatölu.
Viðar Örn hefur skorað 3 mörk í deildinni á tímabilinu.