Sóknarmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur boðið brasilíska liðinu Chapecoense krafta sína en 19 leikmenn liðsins létust í flugslysi í síðustu viku.
22 leikmanna liðsins voru í flugvélinni sem fórst skammt frá borginni Medellín í Kólumbíu aðfaranótt þriðjudags. Þrír leikmanna liðsins lifðu slysið af, varamarkvörðurinn Jakson Ragnar Fullmann, 24 ára, varnarmaðurinn Helio Neto sem er 31 árs, og miðjumaðurinn Alan Ruschel, 27 ára, en allir hinir létu lífið.
Eiður Smári, sem er 38 ára gamall, er án félags eins og sakir standa og tilkynnti á Twitter í kvöld að hann væri til í að leika með Chapecoense í virðingarskyni fyrir þá sem létu lífið í flugslysinu.
Ekki myndi það skemma fyrir ef Eiður Smári gæti leikið aftur með góðvini sínum Ronaldinho.
Out of respect i would play for @ChapecoenseReal if they have a place for me! If not just to play with @10Ronaldinho again #ForcaChape
— Eidur Gudjohnsen (@Eidur22Official) December 4, 2016