Svíinn Sven Göran Eriksson hefur ráðið sig í knattspyrnustjórastarf í B-deildinni í Kína á 69. aldursári.
Eriksson mun stýra liði Shenzhen og tekur við starfinu af Hollendingnum Clarence Seedorf sem stýrði liðinu aðeins í hálft ár.
Eriksson sem er einna frægastur fyrir að hafa stýrt enska landsliðinu hefur þjálfað víða og var lengi á Ítalíu en þjálfaði einnig í Svíþjóð og Portúgal. Hann hefur verið við störf í Kína um nokkra hríð og hætti í síðasta mánuði sem knattspyrnustjóri hjá Shanghai SIPG sem leikur í efstu deild eftir tvö ár við stjórnvölinn.