Knattspyrnumaðurinn Árni Vilhjálmsson er að ganga í raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Jönköpings Södra, en hann staðfestir það við miðilinn 433.is í kvöld.
Árni er samningsbundinn Lillestrøm í Noregi, en var lánaður til Breiðabliks á seinni hluta síðasta keppnistímabils. Hann heldur til Svíþjóðar á morgun til þess að ganga frá skiptunum.
Hinn 22 ára gamli Árni skoraði sex mörk í tólf leikjum með Blikum síðasta sumar, en átti erfitt uppdráttar í Noregi.
Jönköpings Södra var nýliði í sænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og endaði þá í tólfta sæti af sextán liðum.