Barcelona dróst gegn Real Sociedad og Real Madrid gegn Celta Vigo er dregið var í átta liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í dag.
Atletico Madrid mætir Eibar á meðan Alcorcon, eina félagið utan efstu deildar sem eftir er í keppninni, dróst gegn Alaves. Alcorcon er helst þekkt fyrir að vinna Real Madrid, 4:0 í þessari keppni fyrir átta árum síðan.
Barcelona er ríkjandi bikarmeistari Spánar eftir sigur á Sevilla á síðustu leiktíð.