Enski knattspyrnumaðurinn Gary Martin, sem leikið hefur á Íslandi á undanförnum árum, æfir sem stendur með Rúnari Kristinssyni og lærisveinum hans í Lokeren í Belgíu.
Víkingur R. og Lokeren eru búin að semja um kaupverð á Martin og er hann mættur til Belgíu þar sem hann er við æfingar. Hann spilaði svo æfingaleik gegn skoska félaginu Patrick Thistle í dag.
Martin spilaði fyrri hálfleikinn og tókst honum að koma boltanum í netið á 24. mínútu er hann jafnaði í 1:1.
Lokeren vann leikinn að lokum, 5:2. Sverrir Ingi Ingason og Ari Freyr Skúlason leika báðir með Lokeren á meðan Rúnar Kristinsson er aðalþjálfari og Arnar Þór Viðarsson er aðstoðarþjálfari.