Jón Daði Böðvarsson og félagar í Wolves höfðu betur gegn Aston Villa í ensku 1. deildinni í dag. Joe Mason skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega korters leik.
Selfyssingurinn byrjaði á bekknum en kom inn á þegar 13 mínútur voru til leiksloka.
Eftir magurt gengi hefur Wolves nú spilað þrjá leiki í röð án taps en þeir sigla lygnan sjó í 16. sæti.