Brasilíumaðurinn Ronaldinho gæti snúið aftur á knattspyrnuvöllinn eftir rúmlega árs hlé frá atvinnumennsku.
Ronaldinho er orðinn 36 ára og ekki spilað alvöru leik síðan í september 2015. Hann hefur þó tekið þátt í ýmsum vináttuleikjum um heim allan á þeim tíma.
Brasilíska félagið Coritiba og Nacional frá Úrúgvæ hafa lýst yfir áhuga á að fá Ronaldinho til sín.
Ronaldinho var á árum áður einn allra besti knattspyrnumaður heims er hann lék með Barcelona á Spáni.