Þýska knattspyrnufélagið Bayern München hefur gengið frá kaupum á Sebastian Rudy og Niklas Süle frá Hoffenheim.
Þeir munu báðir klára leiktíðina með Hoffenheim og skipta yfir til Bayern í sumar. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Süle er 21 árs varnarmaður sem skrifar undir fimm ára samning við Bayern og Rudy, 26 ára fyrirliði Hoffenheim, skrifar undir þriggja ára samning.