Bale valinn í leikmannahópinn

Gareth Bale.
Gareth Bale. AFP

Walesverjinn Garteh Bale mun að öllum líkindum spila sinn fyrsta leik með Real Madrid frá því í nóvember þegar Real Madrid mætir Espanyol í spænsku deildinni um helgina.

Bale hefur verið frá keppni eftir að hafa gengist undir aðgerð á ökkla fyrir þremur mánuðum en hann er nú orðinn klár í slaginn og verður í leikmannahópi Evrópumeistaranna í leiknum við Espanyol.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert