Markmaðurinn Rúnar Alex Rúnarsson og liðsfélagar hans hjá Nordsjælland þurftu að sætta sig við 0:1 tap gegn Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Rúnar spilaði allan leikinn á milli stanganna hjá Nordsjælland en Hallgrímur Jónasson var allan tímann á varamannabekk Lyngby.
Guðlaugur Victor Pálsson fyrirliði spilaði allan leikinn fyrir Esbjerg sem fór illa með SønderjyskE, 3:0. Eggert Gunnþór Jónsson lék ekki með SønderjyskE vegna meiðsla.
Lyngby komst með sigrinum í þriðja sætið með 34 stig en toppliðin FC Köbenhavn (53) og Bröndby (42) mætast á sunnudaginn. SönderjyskE er með 30 stig í 6. sæti, Nordsjælland er með 25 stig í 9. sæti og Esbjerg er með 22 stig í 12. sæti af 14 liðum í deildinni.