Sverrir Ingi Ingason spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Granada í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Granada vann leikinn 4:1 og er fyrir vikið aðeins tveim stigum frá öruggu sæti í deildinni. Þetta var annar sigur liðsins síðan Sverrir Ingi kom til félagsins en þar á undan hafði liðið aðeins unnið einn leik allt tímabilið.
Sigurinn var býsna öruggur þar sem Granada var komið í 3:0 eftir rétt rúman hálftíma.