Hjörtur hélt hreinu í toppslagnum

Hjörtur átti góðan leik í dag.
Hjörtur átti góðan leik í dag. Ljósmynd/Brøndbyernes IF

Hjörtur Hermannsson lék allan tímann í hjarta varnarinnar hjá Brøndby sem gerði markalaust jafntefli við FC Kaupmannahöfn í dönsku deildinni í knattspyrnu í dag. 

Kaupmannahöfn er í efsta sæti deildarinnar, ellefu stigum á undan Brøndby sem er í 2. sæti og var því um toppslag að ræða. 

Hjörtur er búinn að standa sig ansi vel með Brøndby á leiktíðinni og er hann fastamaður í liðinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert