Englendingurinn John Carver, þjálfari Kára Árnasonar hjá kýpverska knattspyrnuliðinu Omonia Nicosia, var í dag rekinn úr starfi.
Carver tók við þjálfun liðsins í júní á síðasta ári. Omonia Nicosia er í fimmta sæti deildarinnar, tólf stigum á eftir toppliði APOEL, og það eru forráðamenn félagsins ekki ánægðir með og ekki léttist á þeim brúnin þegar liðið féll úr bikarkeppninni í gærkvöld gegn Apollon. Leikurinn var flautaður af þegar skammt var til leiksloka eftir að stuðningsmenn Omonia Nicosia hentu flugeldum inn á völlinn og kröfðust þess að Carver yrði rekinn.
Kári tók ekki þátt í leiknum í gær en hann hefur misst af síðustu þremur leikjum liðsins eftir hafa brákað rifbein.