Úrúgvæinn Edinson Cavani framlengdi í kvöld samning sinn við franska meistaraliðið Paris SG.
Sóknarmaðurinn skæði er nú samningsbundinn Parísarliðinu til ársins 2020 en hann hefur skorað 44 mörk í 44 leikjum með liðinu á leiktíðinni.
„Hann er einfaldlega mesti markaskorarinn í heiminum um þessar mundir,“ sagði Nasser Al-Khelaifi, forseti Paris SG.
Cavani, sem er 30 ára gamall, hefur skorað 125 mörk í 192 leikjum með Paris SG frá því hann kom til liðsins frá ítalska liðinu Napoli árið 2013.