Barcelona náði í kvöld þriggja stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar, alla vega um stundarsakir, þegar liðið burstaði Osasuna, 7:1, á Camp Nou.
Lionel Messi skoraði tvö af mörkum Barcelona og hefur þar með skorað 49 mörk á leiktíðinni. Andre Gomes og Francisco Alcacer skoruðu einnig tvö mörk fyrir Börsunga og Javier Mascherano skoraði eitt úr vítaspyrnu, sem var hans fyrsta mark fyrir Katalóníuliðið sem hann hefur spilað með í sjö ár.
Real Madrid getur jafnað Barcelona á toppi deildarinnar síðar í kvöld en liðið mætir Depotivo La Coruna á útivelli.