Hjörtur Hermannsson og félagar í Brøndby máttu sætta sig við tap fyrir FC Kaupmannahöfn, 3:1, í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar í knattspyrnu á Parken í dag.
Hjörtur spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Brøndby, en staðan var markalaus í hálfleik. FCK komst yfir snemma í síðari hálfleik áður en Hjörtur og félagar jöfnuðu. Tvö mörk á þriggja mínútna kafla undir lok leiksins tryggðu svo FCK bikarmeistaratitilinn.
Hjörtur og félagar í Brøndby eiga eftir einn leik í úrslitakeppninni um danska meistaratitilinn en eru öruggir með annað sætið sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni.