Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo neitaði að taka við spurningum fréttamanna eftir 1:0 sigurinn á Rússum í Álfukeppninni í dag. Ronaldo skoraði sigurmark Portúgala eftir átta mínútna leik.
Ronaldo var valinn maður leiksins og hefðbundið er að maður leiksins mæti á blaðamannafund eftir leik. Í stað þess að taka við spurningum las Ronaldo nokkur orð um leikinn sem höfðu verið skrifuð á blað.
„Ég er mjög sáttur með sigurinn á sterku liði Rússa. Þetta var fyrsti sigur Portúgals í Rússlandi og við spiluðum vel á móti liði sem er á heimavelli og því erum við mjög sáttir,“ sagði Ronaldo áður en hann gekk brosandi út.