Joe Thompson, miðjumaður enska C-deildarfélagsins Rochdale, hefur sigrast á krabbameini í annað sinn. Thompson hefur tvisvar glímt við krabbamein, þrátt fyrir að vera aðeins 28 ára.
Í báðum tilvikum var Thompson með krabbamein í eitlum. Fyrst greindist hann árið 2014 og síðan í mars á þessu ári. Hann hefur gengið í gegnum vel heppnaða lyfjameðferð að undanförnu og nú hefur hann sigrast á krabbameininu í annað sinn.
Thompson hefur leikið í ensku neðri deildunum allan sinn feril og skoraði hann þrjú mörk í 27 leikjum fyrir Rochdale á síðustu leiktíð.