Enska U21 landsliðið í knattspyrnu er komið í undanúrslit á Evrópumótinu í Póllandi eftir öruggan 3:0 sigur á heimamönnum í dag. Í sama riðli hafði Slóvakía betur gegn Svíþjóð með sömu markatölu.
Demarai Gray kom Englendingum yfir eftir aðeins sex mínútna leik og á 69. mínútu tvöfaldaði Jacob Murphy forskot Englendinga. Lewis Baker gulltryggði svo öruggan sigur á 82. mínútu.
Martin Chrien, Jaroslav Mihalík og Ľubomír Šatka skoruðu mörk Slóvakíu í sannfærandi 3:0 sigri á Svíþjóð.