Knattspyrnumaðurinn Neymar er ekki á förum frá Barcelona ef marka má Gerard Piqué, varnarmann liðsins. Neymar hefur verið orðaður við franska liðið PSG að undanförnu og samkvæmt enskum miðlum eru 90% líkur á að hann fari frá Barcelona.
Neymar skoraði tvö glæsileg mörk í 2:1 sigri Barcelona á Juventus í æfingaleik um helgina og í kjölfarið birti Piqué mynd af sér og Neymar á Twitter. Á henni stendur einfaldlega ,,Se queda" eða ,,Hann verður áfram".
Franska dagblaðið Le Parisien segir hins vegar ansi líklegt að félagsskipti hans til PSG verði staðfest á næstu dögum. Hér að neðan má sjá myndina sem Piqué birti á Twitter.
Se queda. pic.twitter.com/RtPHUr9iTH
— Gerard Piqué (@3gerardpique) July 23, 2017