Það vantaði ekki dramatíkina þegar Tottenham og ítalska liðið Roma mættust í æfingaleik í New Jersey í Bandaríkjunum í nótt en þar hafði Roma betur, 3:2.
Staðan var 1:0 fyrir Roma í hálfleik efir mark Diego Perotti úr vítaspyrnu. Þegar tuttugu mínútur voru eftir tvöfaldaði Cengiz Ünder forskot Roma, en þá tók Tottenham við sér. Harry Winks minnkaði muninn á 87. mínútu og á fyrstu mínútu uppbótartíma jafnaði Vincent Janssen metin.
En mínútu síðar skoraði Marco Tumminello sigurmark Roma á annarri mínútu uppbótartímans og lokatölur 3:2 fyrir Roma.