Bandarískur framherji til Fylkis

Kaitlyn Johnson.
Kaitlyn Johnson. Ljósmynd/http://www.wsucougars.com.

Fylkir hefur náð sér í liðsstyrk fyrir komandi baráttu í efstu deild kvenna í knattspyrnu, Pepsi-deildinni, en félagið er búið að semja við bandaríska leikmanninn Kaitlyn Johnson.

Um framherja er að ræða en hún gengur í raðir Fylkis frá Washington State í bandaríska háskólaboltanum.

Fylkir hefur verið í vandræðum í deildinni í ár og er með fjögur stig eftir 10 umferðir, í fallsæti, en liðið á þó einn leik til góða á KR sem hefur sex stig í 8. sætinu.

Um þriðja erlenda leikmanninn á nokkrum dögum er að ræða sem gengur í raðir Fylkis og því ljóst að liðið ætlar sér að halda sér í efstu deild.

Hér að neðan má sjá framherjann kynna sig á heimasíðu Washington State fyrir ári. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert