Jamaíkamaðurinn Usain Bolt mun að öllum líkindum sjá draum sinn rætast með að leika með knattspyrnuliðinu Manchester United. Bolt, sem lagði hlaupaskóna á hilluna að loknu heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem lauk um helgina, hefur oft talað um að gerast knattspyrnumaður í kjölfarið, hjá Manchester-liðinu.
Manchester United og Barcelona mætast í sýningarleik laugardaginn 2. september þar sem margir gamalkunnir knattspyrnumenn sem hafa lagt skóna á hilluna leika, auk Bolt. Það er með þeim formerkjum að hann verði búinn að jafna sig af meiðslunum sem hann varð fyrir á HM.
Samkvæmt The Sun verða eftirtaldir að öllum líkindum í liði Manchester United:
Andy Cole
Edwin van der Sar
Paul Scholes
Jesper Blomqvist
Denis Irwin
Ronny Johnsen
Dwight Yorke
Wes Brown
Phil Neville
Aðrar stjörnur sem verða í liðinu eru Louis Saha, Mikael Silvestre, Quinton Fortune og Dion Dublin.
Eftirtaldir verða að öllum líkindum í liði Barcelona:
Jose Mari Bakero - þjálfari
Gaizka Mendieta
Eric Abidal
Migel Angel Nadal
Gheorghe Popescu