Rúnar Már Sigurjónsson var tekinn af velli í uppbótartíma í 2:0-sigri Grasshopper á heimavelli gegn St. Gallen í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Þetta var fyrsti sigur Grasshopper í deildinni á leiktíðinni.
Grasshopper er í níunda sæti deildarinnar með fjögur stig, þremur stigum meira en Lausanne sem er á botninum. Deildin er ansi jöfn og eru ekki nema fjögur stig í Luzern sem er í fjórða sæti deildarinnar.