Liverpool vann sannfærandi 4:2-heimasigur á Hoffenheim á Anfield í kvöld og tryggði sér í leiðinni sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Liverpool vann samanlagt 6:3.
Enska liðið byrjaði af miklum krafti og var staðan orðin 3:1 eftir aðeins 21 mínútu. Emre Can kom Liverpool á bragðið á 10. mínútu, Mohamed Salah bætti við á 18. mínútu áður en Can skoraði sitt annað mark á 21. mínútu.
Mark Uth lagaði stöðuna fyrir Hoffenheim fyrir hlé, en Roberto Firmino skoraði fjórða mark Liverpool á 63. mínútu. Sandro Wagner átti síðasta orðið fyrir Hoffenheim en Liverpool fór af öryggi í riðlakeppnina.
Dregið verður í riðla á morgun. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.
Liverpool | 4:2 | Hoffenheim | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Benjamin Hübner (Hoffenheim) fær gult spjald | ||||
Augnablik — sæki gögn... |