Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson skoraði glæsilegt mark í 3:2 fyrir Maccabi Tel Aviv sigri gegn Maccabi Netanya í ísraelsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld eins og fram kom á mbl.is fyrr í kvöld.
Viðar jafnaði metin fyrir sína menn og var það virkilega laglegt hjá honum eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.