Inter tapaði í kvöld sínum fyrstu stigum í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Bologna á útivelli.
Simone Verdi kom Bolgona yfir á 32. mínútu en Mauro Icardi bjargaði stigi fyrir Inter þegar hann jafnaði metin úr vítaspyrnu 13 mínútum fyrir leikslok.
Þrátt fyrir jafnteflið komst Inter á topp deildarinnar. Liðið hefur 13 stig eftir fimm leiki en Juventus og Napoli geta skotist fram úr Inter annað kvöld. Þau eru bæði með 12 stig en verða bæði í eldlínunni á morgun.