Það verður að teljast afar líklegt að Spánar- og Evrópumeistarar Real Madrid slái 54 ára gamalt met í kvöld þegar liðið tekur á móti Real Betis í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Skori Real Madrid í leiknum í kvöld bætir það 54 ára gamalt en Real Madrid jafnaði met brasilíska liðsins Santos um síðustu helgi með því að skora í 73. leiknum í röð.
Meistararnir endurheimta Cristiano Ronaldo en hann hefur lokið við afplána fimm leikja bann og ef að líkum lætur mun hann tryggja það að lið sitt slái metið.