Króatíski landsliðsmaðurinn Darijo Srna leikmaður úkraínska liðsins Shakhtar Donetsk er sagður hafa fallið á lyfjaprófi en fjölmiðlar í Úkraínu og í Króatíu greina frá þessu í dag.
Srna, sem er 35 ára gamall og á að baki 135 leiki með króatíska landsliðinu, var tekinn í lyfjapróf eftir sigurinn á móti ítalska liðinu Napoli í Meistaradeildinni í síðustu viku og reyndist sýnið jákvætt en þessar fregnir hafa þó ekki verið staðfestar né hvaða lyf eiga að hafa fundist í sýninu.