Kjartan Henry Finnbogason skoraði seinna mark Horsens sem vann Helsingør, 2:0, á heimavelli sínum í dönsku A-deildinni í knattspyrnu í dag.
Markið er sennilega með þeim skrautlegri sem Kjartan hefur skorað en varnarmaður þrumaði boltanum í framherjann og þaðan fór hann í bláhornið.
Horsens er í fimmta sæti deildarinnar eftir tíu leiki með 16 stig og hefur Kjartan skorað tvö mörk til þessa.