Fyrsta mark Hauks (myndskeið)

Haukur Heiðar Hauksson.
Haukur Heiðar Hauksson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukur Heiðar Hauksson skoraði sitt fyrsta mark fyrir AIK á tímabilinu í gær í 5:2-sigri liðsins á Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Haukur Heiðar skallaði þá boltann í netið eftir hornspyrnu og kom AIK í 3:1, en liðið er í þriðja sæti deildarinnar. Haukur Heiðar missti mikið úr vegna meiðsla síðasta vetur en hefur brotið sér leið á ný inn í lið AIK.

Markið hans má sjá hér að neðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert