Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool fór á kostum gegn Maribor á útivell í 3. umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld og burstaði slóvenska liðið, 7:0. Mohamed Salah og Roberto Firminho skoruðu tvö mörk hvor fyrir Liverpool og Philippe Coutinho, Alex Oxlade-Chamberlain og Trent Alexander-Arnold skoruðu hin mörkin.
Spartak Moskva fór illa með Sevilla í Rússlandi og vann 4:1-sigur. Fyrir vikið fór Liverpool í toppsæti riðilsins og Spartak í 2. sæti en bæði lið eru með fimm stig. Sevilla er í 3. sæti með fjögur stig og Maribor eitt.
Manchester City er með fullt hús stiga í F-riðli eftir 2:1-sigur á Napoli á heimavelli. Raheem Sterling og Gabriel Jesus komu City-mönnum í fína stöðu snemma í leiknum áður en Amadou Dawara minnkaði muninn í uppbótartíma. Shakthar Donetsk er í 2. sæti riðilsins með sex stig eftir 2:1-útisigur á Feyenoord.
Tyrkneska liðið Besiktas er á toppnum og með fullt hús stiga í G-riðli eftir sterkan 2:1-útisigur á Mónakó. Leipzig er í 2. sæti með fjögur stig eftir 3:2-sigur á Porto á heimavelli.
Í H-riðli gerðu stórliðin Real Madríd og Tottenham 1:1-jafntefli á Spáni. Raphael Varane skoraði sjálfmark á 28. mínútu en Cristiano Ronaldo jafnaði á 43. mínútu úr víti og þar við sat. APOEL og Dortmund gerðu 1:1-jafntefli í Kýpur í sama riðli. Real Madríd og Tottenham eru efst í riðlinum með sjö stig og Dortmund og APOEL eru með eitt stig.
Spartak Moskva - Sevilla 4:1
Promes 18', Melgarejo 58' Glushakov 67' Adriano 74' -- Kjær 30'
Feyenoord - Shakhtar Donetsk 1:2
Berghuis 7' -- Bernard 24', 54'
Manchester City - Napoli 2:1
Sterling 9', Jesus 13' -- Diawara 73'
Mónakó - Besiktas 1:2
Falcao 30' -- Tosun 34', 54'
Leipzig - Porto 3:2
Orban 8', Forsberg 37' Augustin 40' -- Aboubakar 18', Marcano 44'
APOEL - Dortmund 1:1
Pote 62' -- Sokratis 67'
Real Madrid - Tottenham 0:1
Ronaldo 43' (víti) -- Varane 28' (sjálfsmark)