Arsenal er komið í góða stöðu í H-riðli í Evrópudeildinni eftir þriðja sigur liðsins í röð í keppninni. Sigurinn var naumur í kvöld en það var glæsilegt mark Frakkans Olivier Giroud sem tryggði liðinu 1:0-sigur í Belgrad á Rauðu stjörnunni frá Serbíu er fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Rauða stjarnan var nær því að skora í fyrri hálfleik er Richmond Boakye skaut boltanum í stöng. Markalaust var hins vegar í hálflelik.
Þegar fimm mínútur voru eftir fékk Giroud boltann á lofti inn í teig og gerði afskaplega vel úr erfiðri stöðu er hann skaut boltanum aftur fyrir sig og í fjærhornið. Á þessum tíma leikmenn Rauðu stjörnunnar tiltölulega nýorðnir einum manni færri en það var Milan Rodic sem fékk sinn annað gula spjald á 80. mínútu.
Arsenal hefur 9 stig í toppsæti H-riðils og er fátt sem getur komið í veg fyrir að liðið komist upp úr riðlinum.