Hegerberg skoraði aftur fernu

Ada Hegerberg var á skotskónum í kvöld.
Ada Hegerberg var á skotskónum í kvöld. Ljósmynd/Lyon

Ríkjandi Evrópumeistarar Lyon tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu eftir rótburst gegn Kazygurt frá Kasakstan, 9:0. Lyon vann einvígið samanlagt 16:0.

Ada Hegerberg skoraði fjögur mörk fyrir Lyon í kvöld þrátt fyrir að fara af velli eftir klukkutíma. Hún skoraði einmitt einnig fjögur mörk í fyrri leiknum sem fór 7:0 og skoraði því helminginn af mörkum Lyon í einvíginu. Þetta er jafnframt þriðja ferna hennar í haust eftir að hafa skorað fjögur mörk í 1. umferð frönsku deildarinnar í september.

Camille Abily skoraði þrennu í kvöld, en staðan var 4:0 í hálfleik. Amel Majri og Delphine Cascariono bættu við sínu markinu hvor fyrir franska meistaraliðið sem fer með gott veganesti inn í átta liða úrslitin.

Montpellier frá Frakklandi átti heldur ekki í neinum vandræðum að komast áfram og vann 6:0 sigur gegn Brescia frá Ítalíu. Montpellier vann einvígið samanlagt 9:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert