Nágrannaliðin, Atlético Madrid og Real Madrid gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í 12. umferð spænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla á Wanda Metropolitano í kvöld.
Hart var barist í leiknum og bæði lið fengu ágætis færi til þess að tryggja sér sigur í leiknum, en gestirnir, Real Madrid, voru aðgangsharðari upp við mark Atlético Madrid.
Real Madrid og Atlético Madrid eru jöfn að stigum með 24 stig í þriðja til fjórða sæti deildarinnar, en liðinu eru 10 stigum á eftir forystusauði deildarinnar, Barcelona.