Spænska 1. deildin í knattspyrnu minnist þess tíma þegar Eiður Smári Guðjohnsen lék með Barcelona á Twitter-síðu sinni í dag.
Eiður Smári lék með Börsungum árin 2006-2009 og skoraði alls 10 mörk í 72 leikjum í deildinni, en í myndskeiði sem opinber Twitter-síða deildarinnar birti í dag má sjá tvö glæsileg mörk.
Eiði Smára er þá sérstaklega hrósað fyrir sínar fyrstu snertingar, enda ekki skrítið eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.
That's some first touch you've got there, @Eidur22Official! 👌#OnThisDay pic.twitter.com/yPG7C9Qx3U
— LaLiga (@LaLigaEN) November 19, 2017