Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrði kínverska kvennalandsliðinu í fyrsta sinn nú í morgun þegar liðið mætti ástralska landsliðinu í vináttuleik í Melbourne, en Kína tapaði leiknum 3:0.
Staðan var 1:0 í hálfleik en eftir hlé bættu Ástralir við tveimur mörkum. Þjóðirnar mætast öðru sinni í vináttuleik á sunnudag í Geelong, 200 þúsund manna bæ sunnan við Melbourne.
Sigurður Ragnar tók við landsliði Kína fyrr í mánuðinum og samdi til þriggja ára, en Kínverjar hafa átt að skipa einu af betri landsliðum heims og eru í 13. sæti á nýjasta styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins. Ástralir eru í 6. sæti heimslistans.