Hannes Þór Halldórsson stóð allan leikinn á milli stanganna hjá Randers sem steinlá fyrir Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, 4:0. Randers er á botni deildarinnar með 14 stig eftir 19 leiki og hefur liðið tapað síðustu þremur leikjum sínum.
Danska deildin er komin í jólafrí og þurfa Hannes og félagar því að bíða til febrúar til að rétta úr kútnum. Midtjylland fer í jólafríið í toppsætinu með 44 stig eftir sigurinn.